Archive for May, 2009
Innbrot
Posted by natti in Uncategorized on May 11th, 2009
Í gær birtist frétt á vefsíðu morgunblaðsins, mbl.is, að ungt par hefði verið handtekið vegna stuld á verki eftir Kjarval.
Fréttin er nokkuð áhugaverð, sérstaklega ef maður hugsar um tölvu-innbrot til samanburðar.
Samkvæmt fréttinni, þá fylltist öryggisvörður grunsemdum og fylgdist með þeim. Þau náðu þá að taka eitt verkanna niður og komust sína leið. Eftir að lögregla mætti á svæðið gat hún borið kennsl á fólkið sem “góðkunningja” lögreglunnar. Fór því næst heim til fólksins og handtók, og sótti málverkið.
(Hér er þetta sett fram eins og verkið hafi verið heima hjá fólkinu, en kem að því síðar.)
Safnstjóri Kjarvalsstaða segir “gott að vita til að öryggiskerfi safnsins er pottþétt.”
Hvernig hefði þetta verið ef um tölvuinnbrot hefði verið að ræða?